Þekking og þjálfun þeirra sem hafa umsjón með netkerfum fyrirtækja, er lykill að góðum árangri. Því býður Fræðslusetur Sensa ehf. upp á metnaðarfulla námskeiðsdagskrá á komandi haustönn, sem spannar allt frá því að byggja góðan grunn í netfræðum, til sérhæfðra námskeiða fyrir þá sem vilja dýpka þekkingu sína.
Öll námskeið hjá Sensa byggjast á því að styðja bóklega yfirferð með verklegri þjálfun, og gefa þannig nemendum góðan stuðning til að viðhalda eigin kerfum.
Námskeiðsyfirlit
Námskeið
Dagsetning
Verð pr.
Verð pr.
Lengd í
þátttakanda
þátttakanda
dögum
samningur
Netfræði grunnur Nýtt. Breytt dags v. veikinda
16. mars 2010
120.000
96.000
3 dagar
Þráðlaus netkerfi AP
2. mars 2010
140.000
112.000
3 dagar
Rekstrarnámskeið í IP samskiptakerfum
9. mars 2010
140.000
112.000
3 dagar
NetÖryggi - Cisco ASA
16. mars 2010
95.000
76.000
2 dagar
NetÖryggi – LAN Security
23.mars 2010
140.000
112.000
3 dagar
Nánari lýsing á námskeiðunum er hér fyrir neðan.
Leiðbeinendur
Leiðbeinendur
á námskeiðunum eru allir tæknimenn, með áralanga reynslu í hönnun, uppsetningu og rekstri netkerfa. Þeir hafa allir viðurkenndar Cisco gráður, eins og t.d. CCIE og CCNP
Staðsetning
Námskeiðin
eru haldin í húsakynnum Sensa ehf. að Kletthálsi 1.
Athugið að fjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er takmarkaður.
Því er mikilvægt að panta sem fyrst til að tryggja sér sæti.
Bóka þátttöku
Einfalt er að bóka sig á námskeið. Hér fyrir neðan er lýsing á hverju námskeiði og þar finnur þú tengil sem færir þig inn í skráningarform. Þá er einnig hægt að hringja til okkar í síma 4141400 eða senda tölvupóst á sala@sensa.is og gefa upp nafn á þátttakenda ásamt fyrirtæki auk þeirra námskeiða sem óskað er eftir.
Skilmálar vegna skráningar á námskeið:
Eftir að skráð hefur verið á námskeið, fær þátttakandi tölvupóst frá Sensa. Með því að svara þeim tölvupósti staðfestir þátttakandi skráningu sína á námskeiðið, jafnfram því að samþykkja eftirfarandi skilmála;
Við staðfestingu á skráningu á námskeið samþykkir þátttakandi að ef til afskráningar kemur, greiðist óafturkræft gjald skv. eftirfarandi:
Ef afskráð er með 3ja daga fyrirvara greiðis námskeiðsgjald að fullu.
Ef afskráð er með 4ra til 7 daga fyrirvara greiðist 25% af námskeiðsgjaldi.
Ef afskráð er með meira en 7 daga fyrirvara greiðist ekkert námskeiðsgjald.