 |
|
|
25. maí 2007 Haukur orðinn CCIE!! Í dag bárust okkur þau gleðitíðindi að Haukur Þórðarson, einn af okkar harðsnúnu tæknimönnum, hafi staðist verklegt CCIE (Cisco Certified Internetworking Expert) próf í gær og hefur því öðlast hina torfengnu CCIE gráðu. Haukur þreytti prófið í Switching and Routing og ber nú gráðuna CCIE Switching and Routing. CCIE gráðan er viðurkenndasta gráða tæknimanna í netlausnum (e. networking), enda kölluð doktorsgráða í netlausnum um allan heim. Með þessum árangri sýnir Haukur að hann hefur frábært vald á þeirri tækni sem snýr að samskiptalausnum, ásamt að hafa það sem til þarf til að leysa flókin vandamál á þessu sviði. Haukur slæst í hóp þeirra Ómars Henningssonar, Gunnars Ingva Þórissonar og Guðmundar Þórs Jóhannssonar hér hjá Sensa, en Ómar er CCIE Routing and Switching, Gunnar Ingvi er CCIE Service Provider og Guðmundur Þór er CCIE Security. Við hér hjá Sensa óskum Hauki hjartanlega til hamingju með þennan glæsilega árangur. |
|
| |