 |
|
|
25. maí 2007 Sensa hlýtur Cisco Customer Satisfaction Award Fyrirtækið Sensa ehf. hlaut nú nýlega verðlaun frá Cisco Systems fyrir
bestan árangur samstarfsaðila í ánægjukönnun meðal viðskiptavina, þriðja árið í
röð. Cisco Systems gerir slíkar kannanir árlega meðal þeirra fyrirtækja sem nýta
sér búnað og tækni frá fyrirtækinu. Ánægjukönnunin mælir getu samstarfsaðilans
til að uppfylla óskir viðskiptavinanna um þekkingu og miðlun á henni, hönnun,
ásamt innleiðingu og þjónustu á IP-kerfum. Verðlaunin eru veitt þeim
samstarfsaðila Cisco Systems sem fær hæsta einkunn meðal viðskiptavina á Íslandi og í Noregi. Þetta er í þriðja skipti í röð sem Sensa fær þessa viðurkenningu.
Valgerður Hrund Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sensa, segir þessa
viðurkenningu vera afar hvetjandi. „Ánægðir viðskiptavinir eru mikilvæg
vísbending um að Sensa og Cisco finni í sameiningu lausnir sem henta hverjum og einum. Við bjóðum mjög víðtæka þjónustu á sviði netlausna, þ.m.t. ráðgjöf,
hönnun, sölu á vöru og þjónustu, þjónustusamninga og námskeið. Það er því mikill heiður að viðskiptavinir okkar skuli telja árangur okkar svo góðan að við fáum hæstu einkunn í slíkri könnun.“
|
| |