 |
|
|
8. júní 2007 Sensa hlýtur viðurkenninguna “Silver Partner of the Year” frá Cisco Systems Á árlegri ráðstefnu sem haldin er fyrir samstarfsaðila Cisco Systems var Sensa veitt viðurkenning sem besti Cisco Silver Partner ársins á Norðurlöndum.
Við þetta tækifæri sagði Niels Christian Furu, framkvæmdastjóri Cisco á Norðurlöndum, að á síðasta fjárhagsári hefði Sensa náð að vaxa umtalsvert og væri nú stærsti samstarfsaðili fyrirtækisins á Íslandi, jafnt sem á samanlögðu markaðsvæði Noregs og Íslands. Árangurinn taldi hann fyrst og fremst felast í hæfu starfsfólki ásamt áherslu Sensa á að selja fyrirtækjum á Íslandi samhæfðar samskiptalausnir frá Cisco (Unified Communications).
Að sögn Valgerðar H. Skúladóttur framkvæmdastjóra Sensa er þetta ánægjuleg staðfesting á því að sú stefna sem Sensa hefur markað sér við að veita góða og faglega sérfræðiþjónustu í IP-netlausnum er að skila fyrirtækinu og viðskiptavinum þess góðum árangri.. “Þetta er okkur mikil hvatning að halda áfram á sömu braut og bæta okkur enn frekar” .
Sensa ehf. er sérfræðifyrirtæki á sviði IP-netlausna og eru starfsmenn átján talsins. Starfsemin felst að mestu leiti í ráðgjöf við hönnun og uppsetningu á IP netlausnum en undir það fellur til dæmis IP-símkerfi, netvirki, öryggismál, netstjórnun, fjarfunda- og myndsímakerfi ásamt efnisveitu neta.. Fyrirtækið var stofnað árið 2002 af nokkrum af núverandi starfsmönnum þess en í apríl á þessu ári seldu eigendurnir alla hluti sína til Símans.
Cisco Systems er leiðandi á heimsvísu í netbúnaði fyrir Internetið. Netkerfi eru í dag orðin ómissandi þáttur í flest öllu atvinnulífi, skólastarfi og stjórnsýslu og eru Cisco Internet protocol (IP) netkerfin grunnur að uppbyggingu slíkra netkerfa.
|
| |