Sensa ehf. er alhliða þjónustufyrirtæki á sviði netlausna, sérstaða okkar liggur í þekkingu og reynslu á þessu sviði. Þjónustuframboð Sensa ehf. veitir viðskiptavinum heildarlausn á nettengingum þar sem krafa viðskiptavinar er gæði – áræðanleiki þjónustu og lausna. Þjónustuframboðinu má skipta í eftirfarandi flokka; Ráðgjöf Starfsmenn Sensa hafa um árabil veitt ábyrga ráðgjöf þessu sviði. Hér er um að ræða fjölbreyttar útfærslur hvort sem um er að ræða endurskoðun á núverandi umhverfi eða nýjar útfærslur. Ráðgjöf vegna netkerfa kemur inn á þætti sem geta snúið að - Öryggismál, hvort sem um er að ræða rekstraröryggi eða öryggisvarnir
- Afkastageta og skalanleiki umhverfisins
- Umferðarstýring og forgangsröðun umferðar t.d. vegna fjölþjónustu netkerfa (gögn – hljóð – mynd)
- Neteftirlit og stjórnun
Hönnun Rétt hönnun og útfærsla netlausna verður sífellt mikilvægari þáttur í rekstri upplýsingakerfa. Rekstrartruflanir í netkerfum geta haft víðtæk áhrif á starfsemi upplýsingakerfi og því er slík röskun á starfsemi fyrirtækja kostnaðarsöm en jafnframt óþörf ef fyrirbyggjandi leiðir eru valdar. Tækniþjónusta Stærsti hluti starfsemi Sensa í dag, snýr að tæknilegri sérfræðiþjónustu á sviði netlausna. Þjónusta á þessu sviði er okkar aðalsmerki, vönduð þjónusta þar sem þekking okkar er eftirsótt söluvara. Reynsla og þekking spannar allt svið netlausna en innan þess má finna - Víðnet og staðarnet
- Öryggismál netkerfa og fjartengingar, þ.m.t. eldveggir og öryggismál staðarneta
- IP símalausnir, símaþjónustusetur – upptaka símtala – O.fl.
- Eftirlit- og stjórnun netkerfa, þ.m.t. vöktunarkerfi - umferðarmælingar
En fremur hafa starfsmenn Sensa mikla reynslu af uppsetningu og viðhaldi á ýmis konar þjónustuþáttum er snúa að netkerfum, en þar má nefna - Léna þjónusta (DNS)
- Tölvupóststýringar (Mail relay)
- Efnissíun og eftirlit tenginga
- Auðkenning og sannvottun fjartenginga
Sala búnaðar Sem hluta af okkar þjónustu bjóðum við vandaðar vörur á okkar sviði frá þekktum framleiðendum netbúnaðar. Við leggjum mikla rækt við söluráðgjöf og bjóðum viðskiptavinum okkar lausnir er byggja á reynslu og þekkingu. Þjónustusamningar Samkvæmt óskum frá viðskiptavinum bjóðum við viðtæka þjónustusamninga er snúa að því að tryggja rekstraröryggi netkerfa. Flestir okkar viðskiptavina gera sér grein fyrir því hagræði er liggur í að tryggja sinn rekstur með samningum við okkur. Okkar samningar fela innihalda m.a. - Aðgengi og viðbragðsþjónustu ef upp koma bilanir
- Aðgang að hugbúnaði og vélbúnaði vegna bilanna
- Útskiptingu og enduruppsetningu búnaðar
- Aðstoð frá tæknisetrum erlendra birgja
- Hagstæð verð á þjónustu og námskeið
- O.fl.
Námskeið og fræðsla Hundruðir ánægðra þátttakenda á námskeiðum er starfsmenn Sensa hafa haldið, er besti mælikvarðinn á gæði námskeiðanna er haldin eru á okkar vegum. Námskeiðshald er mikilvægur þáttur í að tæknimenn fyrirtækja og stofnanna um land allt geti betur sinnt almennu viðhaldi sinna netkerfa. Markmið Sensa mun alltaf vera að veita viðskiptavinum sem allra bestu þekkingu á þessu sviði þannig geta allir bætt þekkingu sína. Námskeiðin innihalda allt frá byrjenda áföngum í netfræði, sem hentað getur tæknimönnum eða stjórnendum sem þurfa góða innsýn inn í nettækni, upp í mjög ítarlegt námsefni sem hentar einungis tæknimönnum með áralanga reynslu af rekstri netkerfa. Námskeiðs framboðið býður m.a. upp á; - Netfræði
- Þráðlaus netkerfi
- Netöryggi
- Eftirlit og stjórnun netkerfa
|