Sensa ehf. - Sími 414-1400


Forsíđa | Vörur | Ţjónusta | Námskeiđ | Um Sensa |
Sunnudagur · 5. september 2010 · 11:52
  Innskráning: (Nýr notandi) 
 Netfang:
 Lykilorđ:

Sensa.is
 · Heim
 · Ţjónusta
 · Vörur
 · Um Sensa
 · Starfsmenn
 · Öryggisprófanir

Um Sensa

Árangur í samkeppni byggir ekki síst á áreiðanlegum, skjótum og sveigjanlegum aðgangi að upplýsingum og öruggum samskiptum.  Þróunin sýnir að samstreymi (e. convergence) upplýsinga á hvaða formi sem er (t.d. tal, mynd, “gögn”) og lausnir sem að því snúa, eins og t.d. IP símalausnir, eru þegar orðin veigamikill þáttur í góðum árangri. Innra- og ytra netkerfi fyrirtækja skipa lykilhlutverk í að tryggja að svo megi vera.

Netkerfið og þær lausnir sem að því snúa, skila ekki hámarksárangri, sama hve miklu er varið í vél- og hugbúnað kerfisins, ef ekki er til staðar mikilvægur hlekkur; sérfræðingur í netlausnum, sem með þekkingu og reynslu tryggir að heildin vinni vel saman og hámarksárangur er tryggður.

Sensa ehf. er þjónustufyrirtæki með sérfræðiþekkingu í netlausnum (e. networking).  Áhersla er lögð á að uppfylla sífellt vaxandi þörf íslenskra fyrirtækja og stofnanna fyrir samskiptahætti og leiðir, sem uppfylla kröfur um áreiðanleika, öryggi og afköst.

Sensa býður upp á þjónustu á sviði netlausna, en þjónustuframboðið fellst í;

· Ráðgjöf

· Hönnun

· Tæknilegri þjónustu og rekstri

· Sölu búnaðar

· Samningum, sem tryggja aðgengi að varabúnaði, aukinni ábyrgð á búnaði og aðgengi að tæknilegri þjónustu

· Fræðslu og námskeiðum er varða netlausnir

 

Þau svið netlausna, sem Sensa leggur áherslu á, eru;

· Innvirki netkerfa (e. infrastructure)

· IP símalausnir (e. IP Telephony)

· Myndfundalausnir (e. video conferencing)

· Öryggismál netkerfa (e. security)

· Eftirlit og stjórnun netkerfa (e. management)

· Efnismiðlun (e. Content management)

 

Sérfræðingar í netlausnum

Til að bjóða bestu þjónustu sem völ er á, á þessu sviði, hefur Sensa á að skipa stærsta og öflugasta hóp sérfræðinga í netlausnum hérlendis. Reynsla og þekking starfsmanna Sensa í hönnun, innleiðingu og rekstur netkerfa ásamt vali á búnaði er sú mesta hér á landi.

Starfsmenn Sensa hafa hlotið viðurkenndar gráður frá Cisco Systems. Þar af hafa fimm tæknimanna Sensa hina torfengnu CCIE (Cisco Certified Internetworking Expert) gráðu, sem er talin sú æðsta í netheiminum.

Samstarfsaðilar

Til þess að tryggja viðskiptavinum sínum bestu mögulega þjónustu gerði Sensa samning í byrjun árs 2003 við Cisco Systems, sem ber heitið System Integrator Agreement (1st Tier contract).

Samningurinn tryggir Sensa ehf. beinan aðgang að Cisco Systems, bæði hvað varðar vörukaup, tæknilegt aðgengi, samstarf og möguleika á að geta boðið fyrirtækjum víðtæka samninga, er snúa að þeim vörum er keyptar eru hjá Sensa. Þar má m.a. nefna, aukna ábyrgð á búnaði, aðgang að uppfærslu hugbúnaðar í Cisco búnað og útskiptingu búnaðar. Ennfremur veitir þessir samningur möguleika á að geta boðið opinberu fyrirtækjum og stofnunum sérkjör á ákveðnum tímum. Þessi samningur við Cisco Systems tryggir að Sensa getur boðið þeim viðskiptavinum er versla vörur hjá þeim, hagstæða útskiptisamninga og hugbúnaðarsamninga á allan þann búnað.

Sensa er Cisco Gold Certified Partner.

Cisco Gold Certified gefur til kynna þekkingarstig innan fyrirtækisins.  Sensa er eina fyrirtækið á Íslandi sem hefur þessa stöðu.

Fyrir viðskiptavini Sensa, tryggir þetta, að kjör á búnaði verða þau bestu sem völ er á og aðgangur á tæknilegri þekkingu er mjög góður. Þar sem mjög strangar kröfur eru gerðar varðandi ferla og gæðistýringu Gold Partner Certified fyrirtækja, tryggir þessi staða að viðskiptavinir Sensa eru að fá vottaða þjónustu. Gold Partner Certification gerir kröfu á Sensa að hafa hátt þekkingarstig (lágmark 4 x CCIE og sérþekkingu á ákveðnum sviðum netlausna), og að rekstur, ferlar og gæði þjónustu sé skv. ströngustu kröfum. Til að tryggja þetta tekur Cisco árlega út þau fyrirtæki sem ná þessum áfanga. Ekki eru líkur á að annað íslenskt fyrirtæki nái þessari stöðu á næstu árum.

Sensa er einnig í samstarfi við fjölda annarra aðila er bjóða netlausnir eða lausnir tengdar netkerfum fyrirtækja.

Viðskiptavinir Sensa

Viðskiptavinir Sensa eru fyrirtæki og stofnanir og hafa stærstu fyrirtæki og stofnanir landsins gert samning við Sensa um þjónustu, varabúnað, hugbúnaðaruppfærslur á netbúnað og aukna ábyrgð með útskiptimöguleikum.

 

Sensa leggur áherslu á lausnir sem virðisaukandi fyrir viðskiptavini þess, falla inn í krefjandi umhverfi og henta kröfuhörðum viðskiptavinum. Til að standa undir slíkum lausnum er lögð rík áhersla á traust samband við viðskiptavini og samstarfsaðila.